<font color=red>aftur á forsíðu</font>

Viðtöl í fjölmiðlum
Leit
Veftré



Hekla hf
 
Audi er brúðarbíllinn í ár
 

 Sigurjón

  

Ég heiti Sigurjón Sveinsson og er tölvunarfræðingur að mennt. Ég útskrifaðist með BS gráðu í tölvunarfræði 11. júní 2005 frá Háskólanum í Reykjavík og starfa í dag hjá Arion banka á Upplýsinga- og tæknisviði. Þar starfa ég í Viðskiptagreind, Business Intelligence.

Ég á þrjú yndisleg börn, Bríeti, Þengil og Loga, með eiginkonu minni, henni Elsu. Þau eru mitt líf, mitt yndi.

Áhugasvið mitt fyrir utan fjölskyldulífið er mikið tengt tölvum og tækni. En einnig hef ég brennandi áhuga á pólitík og málefnum í þjóðfélaginu á líðandi stund. Þar fyrir utan hef ég áhuga á útivist, hreyfingu, tónlist, bílum og góðum mat.

Ég hef unnið við vefforritun síðan janúar 2000. Ég hóf störf hjá Gæðamiðlun, sem síðan rann saman við GSP ráðgjöf og varð að Mekkano. Sem síðan varð að Kveikjum. Sem svo sprakk í Netbólunni miklu. Ég skipti um vinnu 2001 og hóf störf hjá Origo, sem var þá hluti af Tölvumyndum. Ég hóf nám mitt í Háskólanum í Reykjavík í fjarnámi (hálft ár) fór síðan í HMV (Háskólanám með vinnu) og fór síðan í fullt staðarnám fyrir síðustu 3 annirnar. Samhliða náminu í HR vann ég sem kerfisstjóri í Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi.

Þegar ég lauk BS gráðu minni í HR vorið 2005 beið mín starf sem vefforritari hjá Kaupþingi banka (nú Arion). Þar hef ég starfað síðan.

Þekking
Ég þekki vel til reksturs tölvukerfa, vefþjóna, tölvuneta, netþjóna og Active Directory. Sem forritari þekki ég vel til Microsoft umhverfisins. IIS, Windows 2003 server og eldri, Microsoft SQL Server 2005 og eldri, Visual Studio 2005 og eldri, Microsoft ASP.NET framework 3.5, 2.0 og 1.1, ASP í bland við VBScript, Javascript, HTML, CSS, XML, Java Enterprice, Standard og Micro Edition. Þekki líka til fleiri forritunarmála sem ég lærði í Háskólanum en hef ekki notað lengi.

Fyrir utan þetta kann ég á helling í viðbót um tölvur og tölvutengt efni.