<font color=red>aftur á forsíðu</font>

Jafnréttisbaráttan
Stjórnmál

 Tengdar greinar
Áfram Blátt áfram
Opið bréf til ritstjórnar Tíkarinnar
Ingibjörg er fallin af stallinum!
Um heimsókn Kínaforseta og tvískinnung stjórnvalda
Um kynjakvóta og raunverulegt jafnrétti.
Et tu, Már!!
Er Samfylkingin flokkur mannsins?


Hekla hf
 
Audi er brúðarbíllinn í ár
 




Statistik og túlkun þess.
Sigurjón Sveinsson - Föstudagur 22. mars 2002

Djöfull er maður orðinn dauðleiður á þessari umræðu um hvað allt er hættulegt. Það er eins og að sumir geti ekki hugsað um annað. Og svo eru alltaf einhverjar kannanir ‘sem sýna að er þú gerir þetta er aukar líkur á einhverju vondu‘. Ef fólki er ofviða að lifa á það bara liggja heima í rúminu! En annars gerast flest slys á heimilum..... Hmmm....

Ég ætla því núna að stigbeygja orðið Lygi: Lygi - Haugalygi - Tölfræði (Statistik).

Það er hægt að túlka hvaða tölulegar upplýsingar sem er eins og maður vill. Gott dæmi eru sjónvarpsstöðvarnar okkar. Með reglulegu millibili koma út kannanir sem sýna áhorf sjónvarpsstöðva á Íslandi. En allar virðast þær hafa mesta áhorfið samkvæmt þeirra eigin túlkunum á þessum tölum.

Þannig að þegar þú heyrir eða lest eitthvað um það hvað þetta og hitt er hættulegt eða að það auki líkur á einhverjum neikvæðum þáttum skaltu doka við og hugsa fyrir sjálfa/n þig hvað er í raun verið að segja.

Ég segi bara: ‘Ég legg til að lífið verði bannað. Allir þeir sem lifa, deyja. Þess vegna hlýtur lífið að vera stórhættulegt‘