|
||||
|
|||||||||||||||
|
Heimanet Sigurjón Sveinsson - Fimmtudagur 3. nóvember 2005 Viðhengi Greinin um heimanet í PDF formi Heimanet er skilgreint sem sítenging milli tveggja eða fleiri tölva eða annarra stafrænna tækja sem ekki eru skilgreind sem jaðartæki[12]. Heimanet og gagnvirkt sjónvarp eru ekki ný hugtök heldur hugtök sem voru mikið í tísku á blómaskeiði upplýsingaheimsins í kringum 2000. Síðan eru liðin nokkur ár og enn eru fá heimili að nýta sér alla þá tækni sem heimanet hefur uppá að bjóða. Hvaða hindranir eru í veginum fyrir því að heimanet nái útbreiðslu á hinum almenna markaði? Leitast verður við að svara því hér á eftir. Hvað er heimanet? Ein tölva með internettengingu gegnum
upphringisamband eða sítengingu telst ekki falla undir skilgreiningu á
heimaneti. Heimili sem á hinn bóginn hafa eina eða fleiri tölvur tengdar saman
eða tölvu og annað tæki sem ekki telst jaðartæki (prentari og myndskanni teljast
til dæmis til jaðartækja) tengd saman falla hins vegar undir skilgreiningu á
heimaneti. Heimanet geta hins vegar verið mjög mismunandi tæknilega séð. Ef við
tökum til dæmis munin á neti með tveimur tengdum tölvum og neti þar sem tölvan,
sjónvarpið, vekjaraklukkan, öryggiskerfið, ískápurinn, þvottavélin,
ljósabúnaður, hitastillingar og hljómflutningstækin eru öll tengd í gegnum
netið, hægt er að stýra þessum tækjum á miðlægum stað, nýta sér þjónustur sem
framleiðendur eða þjónustuaðilar þessara tækja hafa uppá að bjóða, þá erum við
með tvö mjög ólík heimanet tæknilega séð. Hér að neðan er PDF viðhengi, það inniheldur alla greinina. Viðhengi Greinin um heimanet í PDF formi |
| Sigurjón Sveinsson / 856 6423 / 561 4440 / sigurjons.blogspot.com si.tenmis@vsnojrugis |