Fara á forsíðu
Country Road, Take Me Home, To The Place, I Belong, West Virginia....Prenta þennan texta  

23.11.2001
Opera 6.0 Beta

Opera

Sigurjón var að ná sér í Beta útgáfu af Opera 6.0 vafranum og ég verð að segja eins og er að Sigurjóni finnst mikið til koma.

Vafrinn er fljótur sem elding, skemmtilega hannaður og svo eru margar nýjar aðgerðir þarna inni sem eru frábærar og sýna berlega að það er vel þenkjandi fólk að vinna hjá Opera.

Viðmótið er fallegt og aðgengilegt. Maður getur náð í nokkur skinn fyrir útlitið á vafranum og jafnvel búið til sín eigin ef maður kann smá forritun. Svo ef maður er með bookmark einhvers staðar en man ekki í hvaða möppu er mjög öflugur leitargluggi fyrir bookmark hlutann.

Svo er það stæðsti kostur Operu að allir nýjir gluggar opnast inni í forritinu sjálfu, maður fær ekki fullt af Opera tökkum í Toolbar, bara einn. Þetta er reyndar nokkuð sem er hægt að stilla, það er hægt að fá glugga út um allar jarðir ef notandinn vill það. Já, og gleymum ekki zoominu. Sérstaklega þegar maður er að lesa eitthvern texta í mikilli skjáupplausn eins og hjá Sigurjóni (1600x1200 19 tommu skjár)

Helsti gallinn við Operu 6.0 er að hann styður ekki Javascript eins vel og IE og Netscape. Það er einhver stuðningur við JS, t.d einfaldar onMouseOver myndaskiptingar virka alveg og öll einföld JScript, en ekki stór kóði eins og DHTML felliglugga leiðarkerfi. Og þar sem nokkrar síður eru með stór JS í dag er þetta svolítill galli.

En Sigurjón segir bara ‘Fuck It‘. Gallarnir eru svo smávægilegir og kostirnir svo stórkostlegir að Opera er orðinn staðallinn hjá Sigurjóni núna.

En Microsoft fólkið verður sennilega mjög fljótt að stela þessum góðu hugmyndum sem Opera er að koma með núna og setja inn í IE vafrann líka.

Microsoft einokun hvað?? (kaldhæðni)
::fleebah.com


8.11.2001
Á að banna kökur?
19.10.2001
MSN: Nýtt útlit
10.10.2001
Kominn með XML og RSS
8.10.2001
Er netið öruggt?
31.8.2001
Internet Explorer 6.0 kominn út!!
20.8.2001
Af klámkrækjum og ábyrgð notandans.
17.8.2001
Góð grein hjá Má um frelsi til dreifingar
14.8.2001
Netscape, ó hve ég hata þig.
8.3.2001
Allt sem þú vildir vita um leitarvélar...

kveikir.is
origo.is
Tákn fyrir MSN
W3.org