| Hvað hefur Sigurjón verið að bralla?? |
27.5.2005
Búinn með háskólanámið. B.S. í tölvunarfræði í höfn!
"Loksins loksins loksins" hugsaði ég á þriðjudaginn s.l. kl 11. Þá var ég á ljúka síðasta prófinu til B.S. gráðu í tölvunarfræði í Háskólanum í Reykjavík. Búinn að vera að þessu síðan 2001 þegar ég byrjaði í fjarnámi, fór síðan í HMV og tók síðan þrjár síðustu annirnar í fullu námi. Allt þetta á sama tíma og ég eignaðist tvö börn með henni Elsu minni, var að vinna 50% vinnu og keypti húsnæðið okkar.
Ekki auðvelt en hafðist. Með dyggri aðstoð hennar Elsu minnar og barna.
Nú er ég á leiðinni í sumarbústað fjölskyldunnar með börn og buru. Að njóta lífsins án þess að hafa áhyggjur af neinu skólatengdu. Ég er ekki að fara að skila ritgerð, læra fyrir próf, vinna að skilaverkefni. Ekkert. Bara anda og njóta þess að vera til með fjöldskyldunni. Draumur í dós!
29.9.2004
Ég er orðinn pabbi aftur!
Aðfaranótt þriðjudagsins 28. september, 2004 kom í heiminn annað barn okkar Elsu, hraustur og myndalegur drengur. Fæðingin gekk fljótt og vel. Það er hægt að sjá myndir hérna.
Myndasafn á barnalandi.is
::fleebah.com
17.9.2004
Ég veit ekki hvað ég á að skrifa
Ég ákvað að brjóta odd af oflæti mínu og hripa einhver orð á þessa blessuðu síðu mína sem hefur verið að safna ryki og kóngulóavef núna allt of lengi. En hvað get ég sagt? Barn væntanlegt eftir viku, háskólinn er á fullu, Bríet dóttir mín er yndisleg. Life is wonderful.
::fleebah.com
12.2.2004
Mikið rosalega er ég eitthvað latur!
Já ég veit, ég er ekki búinn að skrifa neitt á vefinn lengi. Það verður gerð bragabót á því fljótlega.
2.9.2003
Buhu, sunarfríið búið, vinnan og skólinn byrjuð.
Mikið var gott að fara í sumarfrí. Fór ekki í sumarfrí í fyrra og var búinn að gleyma hvað þetta er helv. gott. Og DÝRT. Nú er sælan búin og alvara lífsins byrjuð. Háskólinn byrjaður og vinnan líka. Svo er Bríet byrjuð hjá dagmömmu. Hún er svoooo dugleg og yndisleg. Guð hvað ég er heppinn að eiga svona yndilega dóttur.
::fleebah.com
20.7.2003
Kominn í sumarfrí
Jibbí, þvílíkur unaður það er að vera kominn í sumarfrí. Ég tók ekki frí í fyrra og var búinn að gleyma hvernig það er. Vá, það er svo gott að geta slappað af og gera eins og maður vill án þess að hafa áhyggjur af því að það er vinna á morgun. Ferðast um landið, eyða gæðatíma með fjölskyldunni, fara í sólbað, trimma og bara gera það sem manni sýnist. Mér finnst allir dagar vera laugardagar. Búinn að fara norður á Akureyri (og nágrenni). Verð í bænum til mánaðamóta og held þá í víking austur á land.
4.7.2003
Skólinn loksins búinn.
Jæja, fór í síðasta prófið á þessari blessuðu sumarönn í Háskólanum í Reykjavík. Gekk að mér finnst vel. Ég var í Vélbúnaði og svo Reikniritum. Ég verð að segja eins og er að það hefur mikið að segja að vera með góðan kennara í svona fögum, Kári, sá sem kenndi mér Vélbúnað, er frábær kennari og þar af leiðandi held ég að ekki einungis hafi ég lært vel heldur einnig að ég hafi haft áhuga á að læra þetta.
Þá s.s. er ég kominn í frí frá skólanum og kemst í langþráð sumarfrí seinna í þessum mánuði.
Svo byrjar orrustan við lærdóminn aftur í enda ágústmánaðar, ég hlakka svoooo til... NOT.
::fleebah.com
28.5.2003
Klöguskjóða og vælukjói mánaðarins.
Ég titla hér með Stefán Ólafsson prófessor við félagsvísindadeild Háskóla Íslands nafnbótinni Klöguskjóða og vælukjói mánaðarins. Þessi vælukjói klagaði Hannes Hólmstein Gissurarson í Fréttablaðinu og sagði þar að "Hannes væri svo vondur við sig" og bar sig illa. Sagði hann Hannes hóta sér á kaffistofunni og, já, bara vera vondan við sig.
Sannir karlmenn taka á svona ágreiningi sjálfir með festu. En ekki Stefán, hann bara klagar í mömmu sína eða fjölmiðla.
Þvílík veimiltíta. Kannski er það þess vegna sem hann er prófessor í félagsvísindadeild, þar sem upprennandi málsvarar aumingjanna eru.
::fleebah.com
4.4.2003
Prófin í háskólanum búin í bili.
Jæja, ég fór í síðasta próf þessarar annar í dag. Gluggaforritun (MFC), gekk bara helv. vel. Þá tekur við þriggja vikna frí þangað til verkefnavinnan hefst. Það verður sko keyrsla. Jæja, best að fara að sinna dótturinni.
::fleebah.com
5.3.2003
Búinn að afhenda íbúðina.
Jæja, var að koma frá því að afhenta íbúðina mína. Á bara eftir að tæma geymsluna og þá er Gyðufellið horfið inn í algera fortíð.
Annars hefur gestabókin mín verið að fá skrif sem virðist felast í því að hvetja mig til að skrifa meira.
Ég skal reyna að vera duglegri, en lofa engu. Það er svo mikið að gera hjá mér þessa daganna að ég hef varla tíma í að anda.
::fleebah.com
19.2.2003
Búinn að selja íbúðina mína í Gyðufellinu
Jæja, loksins. Þar seldist hún, íbúðin mín í Gyðufellinu. Enda er það ágætt þar sem við Elsa erum búin að festa kaup á annari íbúð og ég þurfti að losa pening. Þannig að allt er nú í lukkunar velstandi.
::fleebah.com
25.1.2003
Litla vísitölufjölskyldan komin í eigið húsnæði.
Já, við fluttum inn fyrir viku síðan í Berjarimann. Fluttningarnir gengu vel og nutum við aðstoðar fjölda vina og ættingja við verkið. Og eins og máltækið segir, þá vinna margar hendur létt verk. En við erum ekki ennþá búin að taka upp úr öllum kössunum. Mér finnst það sorglega fyndið að við fórum með fullan fluttningabíl úr Kvisthaganum sem var 99% með eignum Elsu og svo einhverjum fötum af mér ásamt tannburstanum. Svo þegar þetta var allt komið upp í Berjarima fór ég að ná í mína búslóð í Gyðufellið. Tveir kassar, bakpoki og svefnpoki. That‘s it.
Reyndar á ég píanó sem er ennþá í Gyðufellinu, en samt, mér finnst mér ég hafa sankað að mér yndislega lítið af drasli í gegnum tíðina.
::fleebah.com
12.1.2003
Litla fjölskyldan er að fara að flytja
Sælir landsmenn.
Við vísitölufjölskylduefnið erum núna í óða önn að pakka niður búslóð okkar á Kvisthaganum og undirbúa fluttning okkar upp í Grafarvog. Við keyptum íbúð þar fyrir nokkru og nú er komið að afhendingunni, þ.e. á miðvikudaginn.
Þá munum við hefjast handa við að mála, græja íbúðina og svo flytja og er stefnt á þann gjörning ekki seinna en sunnudaginn.
Við kveðjum Kvisthagan með vissum söknuði í bili en lítum björtum augum fram á við í nýju húsnæði. Og ef við viljum berja augum það yndislega útsýni sem við erum með hérna í vesturbænum (fyrir utan það að sjá heimili forsetans, sem ég mikla andúð á sem persónu) þá förum við bara í heimsókn til næsta íbúa íbúðarinnar, Lailu systur minnar.
::fleebah.com
4.12.2002
Prófin búin
Jæja, prófin eru búin í Háskólanum í Reykjavík og gekk að mér finnst vel. Var í tveim fögum.
Dóttirin dafnar vel, er farin að rífa kjaft við pabba gamla (mig) aðeins 6 mánaða gömul. Það veit á gott.
::fleebah.com
28.9.2002
Buhu... Bláa þruman mín er dáin.
Sorgartíðindi. Bláa þruman varð bráðkvödd í gær. Toyotan mín sleit tímareim í hádeginu á Bústaðaveginum fyrir framan slökkviliðsstöðina og lést samstundis. Hún var búin að þjóna mér dyggilega í þrjú ár og þoldi vel það álag sem fylgir því að vera bíll sem ég er að keyra. Ég keyri nefnilega doldið gratt.
Svalaðu forvitninni
26.9.2002
Úff, djöfull er ég búinn að vera latur
Ég er búinn að vera latur undanfarið að skrifa eitthvað af viti á vefinn minn. Það eru um þrír mánuðir síðan ég skrifaði eitthvað síðast. Síðan hefur margt gerst.
Ég er búinn að fá nýja vinnu, tölvuumsjónarmaður í skóla, byrjaður í háskólanum aftur, búinn að fá ADSL tengingu, gekk í stjórnmálaflokk og margt annað.
Já, ég gekk í samtök manna sem hafa svipaðar skoðanir og ég og þau samtök kallast Frjálshyggjufélagið.
::Fleebah.com
2.7.2002
Hún heitir Bríet, sú stutta.
Við Elsa létum skíra dóttur okkar núna um helgina og fékk hún nafnið Bríet. Hún svaf í gegnum alla skírnarathöfnina og ég tek það sem merki um það að hún sé sátt við allt saman.
4.6.2002
Ég er orðinn PABBI !!!!!!
Elsa og ég eignuðumst litla stelpu sunnudagskvöldið síðasta. Allt gekk vel og öllum líður vel. Hún er 16 merkur og 53 cm. Ég hef ekki tíma núna til að skrifa meira en segi bara að ég/við erum í skýjunum yfir þessum litla íslending sem var að koma í heiminn.
Það eru myndir af henni hérna
::fleebah.com
Svalaðu forvitninni
15.5.2002
Háskólinn búinn í bili
Jæja, þá er ég búinn í Háskólanum í Reykjavík í bili. Kláraði síðustu greinina á mánudaginn, sem var verkefnisvinna, þriggja vikna törn. Þetta gekk vel og á endanum hljómar önnin upp á 8.5, 2*8, 7,5 og 7. Meðaleinkunn var s.s. 7,8. Ekki svo slæmt fyrir gamlan ref eins og mig (hehe).
Núna bíðum við Elsa bara eftir því að erfinginn líti dagsins ljós, barnið á að koma í heiminn 1. júní og það er mikil eftirvænting. Ég held að þetta sé stelpa og Elsa heldur að þetta sé strákur.
Læt ykkur vita um leið og barnið fæðist.
::fleebah.com
2.5.2002
Brjálað að gera í Háskólanum
Ég er núna í verkefnavinnu í Háskólanum í Reykjavík. Brjálað að gera. Mig dreymir bæti og pointera á næturnar
En þetta er gaman og lærdómsríkt. Svo er bumbubúinn að láta meira á sér kræla á hverjum degi. Það er frábært að vera að verða pabbi.
::fleebah.com
26.3.2002
Ég var að kenna í verkefninu Auður í krafti kvenna
Ég er búinn að vera að kenna börnum starfsmanna TölvuMynda vefsíðugerð í allan dag og það er búið að vera æðislega gaman. Stelpurnar komu fyrir hádegi og svo strákarnir eftir hádegi.
Þau gerðu heimasíður og ég var að kenna þeim að gera grundvallar aðgerðir í FrontPage, eins og að breyta letri, setja inn myndir og tengla.
Þetta er virkilega skemmtileg hugmynd og ég styð þær konur sem stóðu að þessu eindregið í því að halda áfram á sömu braut, að kvetja börnin til dáða.
8.3.2002
Vefurinn minn kominn í MS SQL grunn.
Ég er búinn að vera að berjast við það í tvær vikur núna að koma þessu vefsvæði í MS SQL grunn og það tókst loksins.
Ég var með Access skrá sem ég notaði við að gagnatengja allan vefinn minn sem er ekki svo gott en var svona melluredding á sínum tíma.
Svalaðu forvitninni
22.2.2002
Nýja lénið, sigurjon.net, komið í gagnið!
Loksins, loksins. Ég er búinn að vera með þetta lén, sigurjon.net núna heillengi og loksins er það komið í gagnið. Vefurinn minn var búinn að vera á fleebah.origo.is heillengi en eftir mikil, mánaðalöng, átök við Skyggni hf, fyrirtækið sem hýsir vefina okkar í Origo, var lénið mitt tengt. Ég óska mér til hamingju með þetta :)
::fleebah.com
Svalaðu forvitninni
9.1.2002
Sigurjón er að verða pabbi!!
Sigurjón er að verða pabbi og það er von á erfingjanum 1. júní. Sigujón og Elsa fóru í sónarskoðun í gær og það voru teknar myndir af þessum litla íslendingi sem er á leiðinni.
Það er hægt að sjá myndirnar á ljósmyndasíðunni.
Svalaðu forvitninni
17.12.2001
Hugsmiðjan með nýjan vef.
Félagar og fyrrverandi vinnufélagar í Hugsmiðjunni (hugsmidjan.is) voru að opna nýjan vef þann 14. þessa mánaðar.
Við Sigurjón óskum þeim innilega til hamingju með vefinn.
::fleebah.com
|
|
|