Fara á forsíðu
Country roads, take me home, to the place, I belong, West Virginia, mountain momma, take me home, country roads....  
12.4.2005
Áfram Blátt áfram
Ég var að horfa á Kastljósið áðan þar sem systurnar í Blátt áfram voru viðmælendur og ræddu um það kynferðislega ofbeldi sem þær urðu fyrir og áhrif þess á líf þeirra.
Svalaðu forvitninni

3.2.2005
Auglýsingar Umferðastofu ýta undir fordóma gagnvart feðrum.
Undanfarið hefur Umferðastofa verið með auglýsingaherferð í gangi sem er stuðandi. Sumar auglýsingarnar ganga út á vítavert gáleysi og ég verð að segja eins og er að þær þrjár síðustu hafa vakið mig til umhugsunar. En því miður eru þeir þankagangar ekki um skilaboð auglýsinganna heldur framsetningu.
Svalaðu forvitninni

24.9.2004
Forræðishyggja fyrir þéttingu byggðarÞessi færsla ein og sér
Ég skil ekki eitt. Hver könnunin á fætur annarri sýnir að fólk vill helst búa í einbýlishúsi, hvort sem það er orðið raunin eða markmiðið. En samt geta misgáfaðir bessivisserar ekki hætt að básúna um allar jarðir að það eigi að þétta byggð, þétta byggð. Hvað með vilja fólksins?
Í hugum þessara forræðishyggjuforkólfa helgar tilgangurinn meðalið.
::fleebah.com

19.3.2003
Opið bréf til ritstjórnar Tíkarinnar
Í framhaldi af síðustu grein hérna á þessum vef sendi ég hugleiðingar mínar til ritstjórnar vefritsins tikin.is Það er hér í heild sinni.
Svalaðu forvitninni

17.3.2003
Jafnréttisbaráttan er bara handa konum.
Ég var að horfa á Silfur Egils í gær og þar voru tvær konur úr Femínistafélagi Íslands. Það sem þær sögðu staðfesti bara það sem ég hef lengi haldið fram að jafnréttisbaráttan á Íslandi er einstefnugata og er einungis að berjast fyrir auknum réttindum kvenna. Gerir ekkert í að auka réttindi karla.
Svalaðu forvitninni

25.2.2003
Hvað kemur þeim laun Sigurðar við?Þessi færsla ein og sér
Í síðustu viku komust laun Sigurðar Einarssonar, forstjóra Kaupþings, í hámæli. Stjórnmálamenn, verkalýðsleiðtogar og fleiri hafa lýst andúð sinni á svona launum (70 millur).
En að mínu mati kemur þeim það fjandakornið ekkert við hvað maðurinn er með í laun. Hann er ráðinn af stjórn Kaupþings, hlutafélags hvorki í eigu ríkisins né sveitafélaga, sem í sitja fulltrúar eigenda fyrirtækisins. Laun Sigurðar koma þeim einum við, engum öðrum. Þetta væl er bara þetta vanalega kommajarm, fullt af öfund og afbrýðisemi gagnvart þeim sem hafa það gott og eru að standa sig.
::fleebah.com

25.1.2003
Af hræðsluáróðri Bandaríkjanna í garð Íraks.
Það er búið að vera fréttum undanfarna daga að njósnaskýrslur frá Írak bendi til að íraski herinn hafi að einhverju leiti verið útbúin með útbúnaði til varnar eiturgasi og efnavopnum sem samanstendur af hlífðarbúning og atrophíni. Bandaríkin túlka þetta sem svo að Írak sé með þessu að undirbúa sig fyrir að nota eiturgas gegn hugsanlegri innrás. En þetta er þvílíkt bull og endurspeglar enn eina ferðina þá hræsni sem málstaður Bandaríkjamanna samanstendur af. Hér er af hverju.
Svalaðu forvitninni

30.12.2002
Ingibjörg er fallin af stallinum!Þessi færsla ein og sér
Þessa daga er mikið rætt um Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og aðgerðir hennar. Ég bendi bara á þessara greinar og lýsi mig sammála þeim öllum.
Kjarni málsins hjá Múrnum.
Kjarni málsins hjá Andríkinu.
Kjarni málsins hjá Deiglunni.com.
Kjarninn málsins með afsögn Ingibjarnar sem borgarstjóri er þessi, að mínu mati.
Hún sveik loforð, vísvitandi, sem á byggðist það traust sem samstarfsfólk annara flokka en Samfylkingarinnar hafði til hennar. Hún sveik einnig loforð til kjósenda sinna, sem treystu henni sem heiðursmanneskju og töldu sig ekki þurfa neitt annað en loforð hennar.
Nú er Ingibjörg, vegna dómgreindarleysis síns, búin að missa stöðu sína sem borgarstjóri, kemst sennilega ekki á þing og búin að eyðileggja það traust sem verður að ríkja á milli kjósenda og frambjóðenda annars vegar og samstarfsaðila á faglegum vettvangi, sem pólitík er, hins vegar.
Og það er sama hvað hún, Össur Skarphéðins eða annað Samfylkingarfólk kennir öðrum um hvernig fór, þetta pólitíska megaklúður Ingibjarnar skrifast á hennar eigin reikning og hvergi annars staðar. Og hann Össur Skarphéðinsson, froðusnakkur og lýðsskrumari með meiru, er líka ábyrgur fyrir einhverju af þessu.
Sayonara Ingibjörg, Adieu à jamais.
::Fleebah.com

18.12.2002
Ingibjörg sveik loforðÞessi færsla ein og sér
Hún lofaði því hástöfum fyrir borgarstjórnarkostningar að hún myndi ekki fara í landspólitíkina, Reykvíkingar gætu treyst því að hún færi ekki frá þeim. En hún sveik loforð, orð sem hún lofaði okkur ítrekað. Mér finnst hún minni stjórnmálamaður fyrir vikið. Ég var eiginlega mjög vonsvikin með hana, að láta froðusnakk eins og Össur telja hana á að svíkja orð sitt.
Ég trúi því statt og stöðugt að heiður og mannorð er eitt það dýrmætasta sem maður á. Það á ekki að fara með sitt orðspor af léttúð og svíkja orð sitt.
Svona er þetta. Mennirnir eru eins í öllum flokkum landsins. Það eru svikin loforð, vinahygli, spilling, fyrirgreiðslupólitík og annað í öllum flokkum. Frá V-G upp í Sjálfstæðisflokkinn.
::fleebah.com

15.10.2002
Samfylkingin alltaf jafn lýðræðisleg (not).Þessi færsla ein og sér
Samfylkingin er búin að leggja fyrir frumvarp á þingi um að niðurstöður Jafnréttisráðs verði bindandi og ekki áfrýjanlegar til Hæstaréttar. Jú, það eru til jafnréttislög en ef að Samfylkingin vill að einhver nefnd sé vitrari um lögin en lögfróðasta fólk landsins (Hæstiréttur), þá er Samfylkingin enn eina ferðina að víkja frá lýðræðinu, sem byggist á þrískiptingu stjórnvaldsins, löggjafavaldið, framkvæmdavaldið og dómsvaldið.
Ég hef lengi talið Samfylkinguna vera að troða, síendurtekið, á lýðræðinu og þetta mál er eitt dæmið í viðbót því til stuðnings. Ég held að ef Samfylkingin kæmist til valda myndi hún hiklaust skikka landann til að gera og hugsa eins og hún. Með rostunginn í broddi fylkingar.
::Fleebah.com

18.6.2002
Illugi Jökulsson hittir Davíð á höfuðið.Þessi færsla ein og sér
Hin snjalli penni, Illugi Jökulsson hittir svo sannarlega naglann á höfuðið í grein sem birtist á strik.is. Greinin fjallar um heimsókn Kínaforseta og framferði Davíðs Oddssonar í öllu því sem henni fylgdi. Hann segir akkúrat það sem ég held um hann Davíð Oddsson. Ljós þess snjalla stjórnmálamanns er löngu orðið allt of dauft til að loga í skuti þjóðarskútunnar.
Lesa greinina á Strikninu
::fleebah.com

14.6.2002
Um heimsókn Kínaforseta og tvískinnung stjórnvalda
Það er mikið fjallað um heimsókn forseta Kína, Jiangs Zemins, þessa dagana Mér finnst að fyrst að forseti Kína er á annað borð kominn hingað á annað borð eigi stjórnvöld að gera það sem nauðsynlegt er til að tryggja öryggi hans hérna á Íslandi, sviptað og var gert á NATO fundinum um daginn. EN ..... það átti ekkert að bjóða honum hingað í heimsókn til að byrja með.
Svalaðu forvitninni

10.4.2002
Árni Björnsson hittir naglann á höfuðið.Þessi færsla ein og sér
Ég var að lesa grein eftir Árna Björnsson þar sem hann tjáir sig um framferði Bandaríkjanna og setur eitthvað samhengi við árásirnar á World Trade Center. Brilliant grein og eins og tölur úr mínum munni.
::fleebah.com

9.4.2002
Þvílík og önnur eins fyrirgreiðslupólitík!!!Þessi færsla ein og sér
Það var að koma út frétt um það að ríkissjóður ætlar að ábyrgjast skuldabréf fyrir Íslenska Erfðargreiningu upp á 20 milljarða.
Þetta er sko fyrirgreiðslupólitík af verstu gerð og ég er mjög ósáttur við þetta. Það má vel vera að þetta verkefni hafi ‘mikla þjóðhagslega þýðingu‘ o.s.frv. eins og segir í fréttatilkynningu frá fjármálaráðuneytinu en mér er skítsama með hvaða froðusnakki þetta er kynnt þjóðinni, þetta er mjög rotið að vinir forsætisráðherra okkar fái svona lagað á silfurfati. Svo ekki sé minnst á genin okkar....

Ég er að spá í að stofna álverksmiðju og ætla því að kynnast Davíð Oddsyni persónulega. Þannig get ég sennilega fengið fyrirgreiðslu fyrir lánum og ríkisábyrgð á öllu klabbinu. Þetta er sko einkaframtak að hætti Sjálfstæðisflokksins í dag.
::fleebah.com

22.3.2002
Statistik og túlkun þess.
Djöfull er maður orðinn dauðleiður á þessari umræðu um hvað allt er hættulegt. Það er eins og að sumir geti ekki hugsað um annað. Og svo eru alltaf einhverjar kannanir ‘sem sýna að er þú gerir þetta er aukar líkur á einhverju vondu‘. Ef fólki er ofviða að lifa á það bara liggja heima í rúminu! En annars gerast flest slys á heimilum..... Hmmm....
Svalaðu forvitninni

13.3.2002
Um kynjakvóta og raunverulegt jafnrétti.
Ég er búinn að lesa í dag fréttir af því að konur SKULU skipa helming framboðslista í belgískum kostningum. Einnig að stjórnvöld í Noregi hóta að setja kynjakvóta á stjórnir norskra fyrirtækja.
En ég spyr: Er þetta jafnréttisbarátta? Mér nefnilega finnst þetta vera stjarnfræðilega langt frá því að teljast jafnrétti.
Svalaðu forvitninni

6.3.2002
Auðvitað átti að reka hann!
Auðvitað átti að reka starfsmann Símans sem sagði blaðamanni frá misnotkun Friðriks Pálssonar. Hann braut trúnað gagnvart fyrirtækinu með því að fara með þessar upplýsingar út fyrir fyrirtækið áður en hann sagði einhverjum í stjórn fyrirtæksins frá því.
Hérna er mín útskýring af hverju.
Svalaðu forvitninni

8.2.2002
Aldrei getur Kolbrún hætt vitleysunni.
Núna er á alþingi frumvarp sem á að leyfa ólympíska hnefaleika. Það er útlit að það fram að ganga í þetta skipti. En auðvitað þurfti Kolbrún okkar Halldórsdóttir og Katrín Fjeldsted að koma með fáránlega breytingatillögu. Það á að banna högg á höfuðið í boxinu og sambærilegum íþróttum. En eigum við ekki að banna meira fyrst við erum byrjuð að banna?
Svalaðu forvitninni

20.1.2002
Ég er sammála Sigurjóni og Unni.Þessi færsla ein og sér
Sigurjón Arason er sammála þessu, þessu og þessu. Ég held að ég sé hjartanlega sammála líka.
::fleebah.com

20.1.2002
Múrinn: Stundum góðir, stundum vondir, stundum vælandi.
Múrinn var að blammera það að fjármálaráðherra skuli stoppa ríkisskattstjóra af í að skattleggja hlunnindi. Múrinn gagnrýnir Geir H. Haarde fyrir að skapa ójöfnuð meðal manna.
En Sigurjón sér þetta í öðru ljósi. Sigurjón segir: Hver er sinnar gæfu smiður.
Svalaðu forvitninni

3.1.2002
Ólafur F. Magnússon, tækifærissinni.
Brilliant! Ólafur segir sig úr Sjálstæðisflokkinum og stefnir á framboð með öryrkjum og öldruðum. Sigurjóni finnst vera skítalykt af þessu. Sigurjóni finnst Ólafur vera tækifærissinni sem sé að leita að ‘easy ride‘ inn í borgarstjórn Reykjavíkur á næsta kjörtímabili og hefur fundið sér félaga til að líma sig við, öryrkja og aldraða, sem virðast einnig stefna á sérframboð í næstu borgarstjórnarkostningum.
Svalaðu forvitninni

24.12.2001
Múrinn hittir naglann á höfuðið.Þessi færsla ein og sér
Ég verö að segja það að múrinn.is er alltaf jafn málefnalegur, þó ég sé oftar en ekki ósammála honum í innanríkismálum.
Grein þeirra um málefni Palestínu hittir naglann á höfuðið.
::fleebah.com

18.12.2001
Et tu, Már!!
Sigurjón var á netinu eins og vanarlega og sá þar góðan vin sinn úthúða frjálshyggjumönnum og Vefþjóðviljanum og segja þá vera öfgamenn, sem ekki líða neinum öðrum skoðunum en skoðanabræðrum sínum, öðrum frjálshyggjumönnum.
Sigurjón segir bara: Varúð!! Varúð!! Ef þú býrð í glerhúsi, ekki kasta steinum án umhugsunar.
Svalaðu forvitninni

3.12.2001
Er Samfylkingin flokkur mannsins?
Sigurjón hefur verið að spá mikið í það hvaða stjórnmálaflokkur höfðar til hans og álpaðist til að íhuga samfylkinguna, fór reyndar inn á þær slóðir nokkrum sinnum. En í hvert sinn sem hann var að skoða Samfylkinguna varð hann afhuga henni út af grundvallaratriðum sem eru tíundaðar hér fyrir neðan.
Svalaðu forvitninni

25.10.2001
Bannað að segja hug sinnÞessi færsla ein og sér
Jæja, þá er búið að dæma varaformann Félags íslenskra þjóðernissinna í sekt fyrir að segja frá skoðunum sínum í fjölmiðlum (mbl.is). Stórsigur fyrir lýðræði og málfrelsi og skoðannaskipti á Íslandi. (Þetta var kaldhæðni).
Hvaða ummæli verða refsiverð næst? Að kalla Davíð Oddsson og Friðrik Arngrímsson (LÍÚ) mammon-bræður? Eða ætli það verði eitthvað annað?
Eitt veit ég þó. Gunnar í Krossinum og Snorri í Betel hafa undanfarið verið að segja ýmislegt niðrandi um samkynhneigða. Er það eitthvað öðruvísi en þetta mál? Tja, það sést á þessu máli að það er ekki sama hvort maður er sjómaður eða prestur þegar að blammeringum kemur.
Pæling ....
::fleebah.com

Alþingi Íslands
Framsóknarflokkurinn
Frelsi.is
Frjálshyggjufélagið
Frjálslyndi flokkurinn
Ísland - Palestína
kreml.is
múrinn
Samfylkingin
Sjálfstæðisflokkurinn
skodun.is
SUS
Ungir jafnaðarmenn
Vef-Þjóðviljinn
Vinstri - Grænir

" Ef þú ert ekki tilbúin til að verja það sem þér finnst óviðeigandi, þá trúir þú ekki á málfrelsi. Þá trúir þú bara á málfrelsi þeirra sem þú ert sammála og eru sammála þér "
Salman Rushdie
(Rithöfundur með dauðadóm)

" Glæpur kapítalismans er ójöfn dreifing gæða, en glæpur sósíalismans er jöfn dreifing ömurleika. "
Winston Churchill
(Forsætisráðherra Bretlands í seinni heimstyrjöldinni)

" When The Going Gets Tough, The Tough Get Going "
When The Going Gets Tough
( Billy Ocean)

" Öfund og afbrýðisemi er undirrót margs ills. "
Sigurjón Sveinsson
(algjör hálfviti)

" Það er fyrst þegar reynir á í lífinu að við sjáum úr hverju við erum gerð og hvað við getum. "
Sigurjón Sveinsson
(Algjör hálfviti)

Lesa meira í Sigurjónismanum