Fara á forsíðu

 
SCOOP  27.5.2005
Búinn með háskólanámið. B.S. í tölvunarfræði í höfn!Þessi færsla ein og sér
"Loksins loksins loksins" hugsaði ég á þriðjudaginn s.l. kl 11. Þá var ég á ljúka síðasta prófinu til B.S. gráðu í tölvunarfræði í Háskólanum í Reykjavík. Búinn að vera að þessu síðan 2001 þegar ég byrjaði í fjarnámi, fór síðan í HMV og tók síðan þrjár síðustu annirnar í fullu námi. Allt þetta á sama tíma og ég eignaðist tvö börn með henni Elsu minni, var að vinna 50% vinnu og keypti húsnæðið okkar.
Ekki auðvelt en hafðist. Með dyggri aðstoð hennar Elsu minnar og barna.

Nú er ég á leiðinni í sumarbústað fjölskyldunnar með börn og buru. Að njóta lífsins án þess að hafa áhyggjur af neinu skólatengdu. Ég er ekki að fara að skila ritgerð, læra fyrir próf, vinna að skilaverkefni. Ekkert. Bara anda og njóta þess að vera til með fjöldskyldunni. Draumur í dós!


SKOÐUN  12.4.2005
Áfram Blátt áfram
Ég var að horfa á Kastljósið áðan þar sem systurnar í Blátt áfram voru viðmælendur og ræddu um það kynferðislega ofbeldi sem þær urðu fyrir og áhrif þess á líf þeirra.
Svalaðu forvitninni


SKOÐUN  3.2.2005
Auglýsingar Umferðastofu ýta undir fordóma gagnvart feðrum.
Undanfarið hefur Umferðastofa verið með auglýsingaherferð í gangi sem er stuðandi. Sumar auglýsingarnar ganga út á vítavert gáleysi og ég verð að segja eins og er að þær þrjár síðustu hafa vakið mig til umhugsunar. En því miður eru þeir þankagangar ekki um skilaboð auglýsinganna heldur framsetningu.
Svalaðu forvitninni


SCOOP  29.9.2004
Ég er orðinn pabbi aftur!Þessi færsla ein og sér
Aðfaranótt þriðjudagsins 28. september, 2004 kom í heiminn annað barn okkar Elsu, hraustur og myndalegur drengur. Fæðingin gekk fljótt og vel. Það er hægt að sjá myndir hérna.
Myndasafn á barnalandi.is
::fleebah.com


SKOÐUN  24.9.2004
Forræðishyggja fyrir þéttingu byggðarÞessi færsla ein og sér
Ég skil ekki eitt. Hver könnunin á fætur annarri sýnir að fólk vill helst búa í einbýlishúsi, hvort sem það er orðið raunin eða markmiðið. En samt geta misgáfaðir bessivisserar ekki hætt að básúna um allar jarðir að það eigi að þétta byggð, þétta byggð. Hvað með vilja fólksins?
Í hugum þessara forræðishyggjuforkólfa helgar tilgangurinn meðalið.
::fleebah.com


SCOOP  17.9.2004
Ég veit ekki hvað ég á að skrifaÞessi færsla ein og sér
Ég ákvað að brjóta odd af oflæti mínu og hripa einhver orð á þessa blessuðu síðu mína sem hefur verið að safna ryki og kóngulóavef núna allt of lengi. En hvað get ég sagt? Barn væntanlegt eftir viku, háskólinn er á fullu, Bríet dóttir mín er yndisleg. Life is wonderful.
::fleebah.com


SCOOP  12.2.2004
Mikið rosalega er ég eitthvað latur!Þessi færsla ein og sér
Já ég veit, ég er ekki búinn að skrifa neitt á vefinn lengi. Það verður gerð bragabót á því fljótlega.


SCOOP  2.9.2003
Buhu, sunarfríið búið, vinnan og skólinn byrjuð.Þessi færsla ein og sér
Mikið var gott að fara í sumarfrí. Fór ekki í sumarfrí í fyrra og var búinn að gleyma hvað þetta er helv. gott. Og DÝRT. Nú er sælan búin og alvara lífsins byrjuð. Háskólinn byrjaður og vinnan líka. Svo er Bríet byrjuð hjá dagmömmu. Hún er svoooo dugleg og yndisleg. Guð hvað ég er heppinn að eiga svona yndilega dóttur.
::fleebah.com


SCOOP  20.7.2003
Kominn í sumarfríÞessi færsla ein og sér
Jibbí, þvílíkur unaður það er að vera kominn í sumarfrí. Ég tók ekki frí í fyrra og var búinn að gleyma hvernig það er. Vá, það er svo gott að geta slappað af og gera eins og maður vill án þess að hafa áhyggjur af því að það er vinna á morgun. Ferðast um landið, eyða gæðatíma með fjölskyldunni, fara í sólbað, trimma og bara gera það sem manni sýnist. Mér finnst allir dagar vera laugardagar. Búinn að fara norður á Akureyri (og nágrenni). Verð í bænum til mánaðamóta og held þá í víking austur á land.


SCOOP  4.7.2003
Skólinn loksins búinn.Þessi færsla ein og sér
Jæja, fór í síðasta prófið á þessari blessuðu sumarönn í Háskólanum í Reykjavík. Gekk að mér finnst vel. Ég var í Vélbúnaði og svo Reikniritum. Ég verð að segja eins og er að það hefur mikið að segja að vera með góðan kennara í svona fögum, Kári, sá sem kenndi mér Vélbúnað, er frábær kennari og þar af leiðandi held ég að ekki einungis hafi ég lært vel heldur einnig að ég hafi haft áhuga á að læra þetta.
Þá s.s. er ég kominn í frí frá skólanum og kemst í langþráð sumarfrí seinna í þessum mánuði.
Svo byrjar orrustan við lærdóminn aftur í enda ágústmánaðar, ég hlakka svoooo til... NOT.
::fleebah.com


" Ef þú ert ekki tilbúin til að verja það sem þér finnst óviðeigandi, þá trúir þú ekki á málfrelsi. Þá trúir þú bara á málfrelsi þeirra sem þú ert sammála og eru sammála þér "

Salman Rushdie
(Rithöfundur með dauðadóm)

baldur.com
Bergur.is
Bríet Sigurjónsdóttir
Dagný Reykjalín
Már Örlygsson
Reynir
Sharq (Charques)
Sigurjón og Jóney
Simmi
Styrmir

23.11.2001
Opera 6.0 Beta
8.11.2001
Á að banna kökur?
19.10.2001
MSN: Nýtt útlit


12.4.2005
Áfram Blátt áfram
3.2.2005
Auglýsingar Umferðastofu ýta undir fordóma gagnvart feðrum.
24.9.2004
Forræðishyggja fyrir þéttingu byggðar


6.3.2002
Tool fékk Grammy!
7.1.2002
The Lord Of The Rings, frábær kvikmynd.